Jurtir hafa frá fornu fari verið notaðar til lækninga. Smyrslin frá Villimey eru unnin úr íslenskum jurtum sem eru handtíndar í hreinni náttúru Vestfjarða þegar virkni þeirra er hvað mest.

Áhugi Aðalbjargar Þorsteinsdóttur á jurtum og áhrifamætti þeirra vaknaði snemma. Nálægðin við stórbrotna náttúru Vestfjarða hafði þau áhrif að frá blautu barnsbeini hefur Aðalbjörg trúað á töframátt jurtanna. Aðalbjörg hefur þróað uppskriftirnar sjálf, en þær eru sóttar í vísdóm og verkkunnáttu, hefðir og sögusagnir sem gengið hafa mann fram af manni á Íslandi öldum saman. Þróun og framleiðsla Villimeyjar á smyrslum, salva og áburði úr jurtum sem eru tíndar við Tálknafjörð og Arnarfjörð hefur staðið frá 1990.

Aðalbjörg gætir þess í hvívetna að velja villtar jurtir sem vaxa í næringarríkum jarðvegi og fá hreint loft og tært vatn, þannig að bestu eiginleikar og einstök virkni jurtanna nýtist til fullnustu. Uppskriftir þær sem Aðalbjörg hefur þróað eru að stórum hluta sóttar í vísdóm og verkkunnáttu, hefðir og sögusagnir sem gengið hafa mann fram af manni á Íslandi í hundruð ára. Smyrslin eru náttúruleg og lífræn, án allra rotvarna-, ilm- og litarefna.

Smyrslin frá Villimey eru lífrænt vottuð af Vottunarstofunni Túni. Tún gefur út reglur um lífrænar aðferðir í framleiðslu landbúnaðar- og náttúruafurða. Reglur Túns miðast við íslenskar og evrópskar lagareglur um sama efni.

Lífrænt vottaðar vinnslustöðvar uppfylla kröfur um innihald afurða, uppruna og aðgreiningu hráefna, gæðastýringu og fleira sem reglur kveða á um. Ef innihaldsefni upprunnin úr landbúnaði eru a.m.k. 95% vottuð lífræn og það sem á vantar eru svonefnd „leyfileg innihaldsefni af hefðbundnum uppruna“, er heimilt að votta viðkomandi vöru sem „lífræna“. Ef slík efni eru undir 95% en ná þó 70% er einungis heimilt að vísa til lífrænna aðferða í innihaldslýsingum.
Öll smyrsl Villimeyjar eru með 100% lífræna vottun.