Almennir Skilmálar
TIL VIÐSKIPTAVINA VILLIMEYJAR
Almennir skilmálar Villimeyjar slf., kt. 550906-0820, Leiruvegi 2 162 Reykjavík (hér eftir einnig vísað til sem „við“ eða ,,félagið”) gilda um öll viðskipti félagsins við viðskiptavini okkar (hér eftir einnig vísað til sem ,,þú”) þegar þau eiga sér stað á vefverslun okkar, www.VILLIMEY.is, eða eftir öðrum leiðum, s.s. með pöntunum í gegnum netfangið [email protected].
Skilmálar þessir, ásamt sendingarstefnu og persónuverndarstefnu VILLIMEYJAR, fela að jafnaði í sér heildarsamning okkar við þig um viðskiptin. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að þessa skilmála vandlega áður en verslað er, því við kaup á vöru undirgengst viðskiptavinur þessa skilmála.
1. VÖRUR & ÞJÓNUSTA
VILLIMEY er íslenskt húðvörumerki sem þróar, framleiðir og selur hágæða lífrænt vottaðar húðvörur. Við nýtum einstakan kraft villtrar íslenskrar náttúru og handtínum allar jurtirnar í stórbrotinni náttúru Vestfjarða.
2. HÆFI
Viðskiptavinur verður að hafa náð 18 ára aldri til að versla hjá okkur. Með því að versla í vefversluninni staðfestir viðskiptavinur að hann hafi náð 18 ára aldri og sé lögráða, og hæfur til að gera bindandi samninga. Ef kaup eru gerð í nafni lögaðila staðfestir viðkomandi að hann hafi heimild til að skuldbinda viðkomandi lögaðila.
3. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við leggjum okkur fram við að vernda þær persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té og tryggja að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir ,,persónuverndarlög”). Þegar þú kaupir vöru í vefverslun okkar vinnum við með nauðsynlegar upplýsingar til að geta afgreitt vörupöntunina. Nánari upplýsingar um það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar má finna í persónuverndarstefnu okkar.
4. ENDURSALA
Vörurnar í vefverslun okkar eru eingöngu seldar til einkanota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum okkar án leyfis. Við áskiljum okkur rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Hafir þú áhuga á að kaupa vörur til endursölu hvetjum við þig til að hafa samband við okkur á [email protected] eða með því að fylla út formið hér.
5. NOTKUN
Vörur VILLIMEYJAR skal nota í samræmi við lýsingu um viðeigandi notkun hverrar vöru, sem er að finna á vefsíðu okkar. VILLIMEYJAR vörurnar eru eingöngu ætlaðar til notkunar útvortis. Ef þú notar vörurnar á annan hátt en notkunarleiðbeiningarnar kveða á um erum við ekki skaðabótaskyld vegna mögulegar afleiðinga, né er unnt að krefja okkur um endurgreiðslu.
6. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA Á VEF
Upplýsingar á vefsíðu okkar birtar með fyrirvara um bilanir, vírusa eða innsláttavillur. Við leggjum okkur fram við að hafa réttar upplýsingar á vefsíðu okkar, s.s um lagerstöðu, lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar, en þó geta komið upp tilvik þar sem til dæmis um umbúðarmun getur verið að ræða vegna uppfærslu á útliti umbúða. Þá getum við ekki tryggt að við eigum allar vörutegundir til öllum stundum.
7. VERÐ
Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum og er virðisaukaskattur innifalinn í því verði. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði án fyrirvara.
Sendingarkostnaður, sem fylgir verðskrá sendingaraðilanna, leggst á pöntun og kemur fram í pöntunarferli.
Þá gætir þú þurft að greiða toll af sendingunni þinni ef þú býrð utan Íslands.
8. GREIÐSLULEIÐIR
Við tökum við greiðslum fyrir pöntun þína með eftirfarandi greiðslumátum; VISA, Mastercard, Netgíró, og með innlögn á bankareikning okkar. Ef vandamál vegna greiðslu koma upp, til dæmis vegna þess að kort er ógilt, áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
9. KAUPAUKAR & TILBOÐ
Aðeins einn kaupauki fylgir hverri pöntun þegar slík tilboð eru í gildi. Við áskiljum okkur rétt til að fjarlægja viðbótarkaupauka sem kunna að hafa bæst við pöntun vegna misnotkunar eða tæknilegrar bilunar í vefkerfi. Tilboð, sem og kaupaukatilboð, gilda meðan birgðir endast, á þeim dagsetningum sem eru tilgreindar hverju sinni og áskiljum við okkur rétt til að afturkalla tilboð hvenær sem er.
10. FERILL PÖNTUNAR & SENDING
Þegar þú hefur lokið við að panta vöru í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga milli kl. 10 og 15. Pöntun sem lögð er fram eftir þann tíma á virkum degi og/eða á íslenskum frídegi er afgreidd næsta virka dag.
Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu en þegar pöntun hefur verið póstlögð berst þér staðfesting þess efnis.
- Póstsending getur tekið um 1-4 virka daga innanlands og við sendum um land allt með bæði Íslandspósti og Dropp.
- Við sendum pantanir erlendis með Íslandspósti og tekur póstsending erlendis um 4-14 virka daga.
Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó ávallt á staðsetningu viðtakanda og meðhöndlun Íslandspósts/Dropp.
VILLIMEY vekur sérstaka athygli á því að við höfum enga stjórn á því hvað verður um sendinguna eftir að við afhendum hana til sendingaraðila – hvorki á nákvæmum afhendingardegi eða afhendingartíma.
11. BREYTINGAR Á PÖNTUN
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum milli kl. 10 og 15. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana, því ef þú þarft að breyta pöntun eftir á getur hlotist af því viðbótarkostnaður ef við erum búnar að senda hana af stað. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á [email protected].
12. BAKFÆRSLA PÖNTUNAR
Við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef í ljós kemur; að vara er ekki til á lager; að greiðsluupplýsingar þínar eru rangar, eða þú ert ekki samþykktur í lánshæfismati; það voru mistök á vefsíðunni, t.d. greiðsluvilla eða augljós verðvilla; við höfum ástæðu til að ætla að þú sért yngri en 18 ára; eða ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.
13. SKILARÉTTUR
Viðskiptavinur hefur rétt á að skila vöru innan 14 daga frá því að hann veitti vörunni viðtöku og fá hana endurgreidda. Skilyrði fyrir vöruskilum eru eftirfarandi;
- að vara sé ónotuð, með órofnu innsigli og í óskemmdum upprunalegum umbúðum,
- að reikningi eða kvittun fyrir vörukaupum sé framvísað.
Við metum söluhæfi skilavöru og áskiljum okkur rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef framangreindum skilyrðum er áfátt. Þá nær endurgreiðsla vegna vöruskila aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá viðskiptavini, er á ábyrgð viðskiptavinar.
Séu skilyrði vöruskila uppfylt óskum við eftir því að þú sendir okkur beiðni um skil á netfangið [email protected]. Hægt er að skila vöru með því að senda hana til Villimey slf., Leiruvegi 2, 162 Reykjavík Ísland.
14. RÖNG EÐA GÖLLUÐ VARA
Telji viðskiptavinur sig hafa fengið afhenta ranga eða gallaða vöru ber honum að tilkynna það með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið [email protected] ásamt upplýsingum um pöntunarnúmer og reikning/kvittun. Að öðrum kosti getur komið upp sú staða að viðskiptavinur glati rétti sínum til endurgreiðslu.
Viðskiptavinur hefur val um að fá gallaða vöru endurgreidda ásamt sendingarkostnaði eða fá annað eintak af sömu vöru sent til sín, sér að kostnaðarlausu.
15. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við leggjum áherslu á öryggi þitt og höfum gert viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir, miðað við eðli, umfang og tilgang okkar reksturs, til að tryggja viðunandi öryggi vefsvæðis okkar. Gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur og getum við ekki ábyrgst að óviðkomandi þriðji aðili muni aldrei geta unnið bug á öryggisráðstöfunum okkar, en við leggjum við okkur fram við að nota örugga tækni og erum stöðugt að bæta hugbúnað okkar í samræmi við nýjustu tækni.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum og notumst við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna. SSL kóðun varnar því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn. Undir lok pöntunarinnar flytur vefsíðan þig yfir á annað svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar. Gamlir vafrar geta verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Þú getur lesið nánar um öryggi persónuupplýsinga þinna í persónuverndarstefnu okkar.
16. HÖFUNDA- OG HUGVERKARÉTTUR
Allt efni á vefverslun VILLIMEYJAR, sem og á samfélagsmiðlum okkar, þar með talið textar, myndir, grafík, vörulýsingar, vörumerki, lógó, hönnun, hugbúnaður og annað efni, er varið samkvæmt gildandi lögum og reglum um hugverkaréttindi.
Þær vörur sem VILLIMEY selur, þar á meðal útlit þeirra, hönnun, heiti, framleiðsluaðferðir, uppskriftir, formúlur, innihaldsefni, virkar lausnir og önnur hugverk sem tengjast vörunum, njóta verndar samkvæmt lögum um höfundarrétt, vörumerki, einkaleyfi og/eða viðskiptaleyndarmál.
Óheimilt er að afrita, endurgera, herma eftir, endurhanna, selja áfram, dreifa eða á annan hátt nýta vörur og efni VILLIMEYJAR í viðskiptalegum tilgangi, þar á meðal til að þróa eða framleiða sambærilegar vörur.
Kaup á vöru veita viðskiptavini eingöngu eignarhald á hinni áþreifanlegu vöru, en fela ekki í sér framsal eða veitingu hugverkaréttar, leyfis eða annarra réttinda að hugverkum sem tengjast vörunni.
Brot gegn ofangreindum ákvæðum getur haft í för með sér lagalegar afleiðingar, svo sem, en ekki takmarkað við; kæru fyrir brot á viðeigandi lögum, kröfu skaðabóta og lögbanni til að stöðva frekari misnotkun.
17. BÖNNUÐ NOTKUN
Óheimilt er að nota vefsvæði VILLIMEYJAR eða efni á því í ólögmætum tilgangi eða með þeim hætti að það geti valdið tjóni, truflun eða raski á starfsemi vefsvæðisins eða réttindum annarra. Þetta nær m.a. til, en takmarkast ekki við, misnotkun persónuupplýsinga, dreifingu spilliforrita, sendingu ruslpósts, villandi eða rangra upplýsinga, eða tilrauna til að komast fram hjá öryggisráðstöfunum vefsvæðisins.
Brjóti notandi gegn framangreindu áskilur VILLIMEY sér rétt til að takmarka eða loka aðgangi að vefsvæðinu, að því marki sem lög heimila.
18. ATHUGASEMDIR, ENDURGJÖF OG UMSAGNIR
Með því að senda inn athugasemdir, umsagnir, hugmyndir eða annað efni til VILLIMEYJAR, hvort sem er í gegnum vefsvæði, samfélagsmiðla eða með öðrum hætti, veitir þú VILLIMEY endurgjaldslausan rétt til að nota slíkt efni í tengslum við starfsemi félagsins, þar á meðal í markaðs- og kynningarefni. Slíkt efni telst ekki trúnaðarmál og getur verið aðgengilegt almenningi. Einstaklingur ber sjálfur ábyrgð á því efni sem hann sendir inn og tryggir að það brjóti ekki gegn lögum eða réttindum þriðja aðila.
19. ÚRLAUSN ÁGREININGSMÁLA
Öll mál sem kunna að rísa vegna skilmála þessara skulu fara eftir íslenskum lögum, nema um annað sé samið. Rísi mál vegna brota á skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
20. BREYTINGAR Á SKILMÁLUM
Skilmálar þessir geta tekið breytingum. Þær breytingar sem kunna að vera gerðar taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt á vefsíðu okkar. Skilmálar þessir voru síðast uppfærðir 1. apríl 2026.
21. HAFÐU SAMBAND
Ef þú hefur einhverjar spurningar vegna þessarra skilmála skaltu hafa samband við okkur í gegnum netfangið [email protected].