Persónuverndarstefna Villimeyjar

Persónuvernd þín skiptir okkur máli. Við leggjum okkur fram við að vernda þær persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té og tryggja að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir ,,persónuverndarlög”). 

Við hvetjum þig til að lesa persónuverndarstefnuna vandlega, því hér er greint frá því hvernig Villimey slf., kt. 550906-0820, Leiruvegi 2, 162 Reykjavík (hér eftir einnig vísað til sem ,,félagið” eða ,,við”), sem ábyrgðaraðili, safnar og vinnur persónuupplýsingar.

Þessi persónuverndarstefna nær til viðskiptavina okkar, og eftir atvikum einnig til annarra einstaklinga, t.d. þeirra sem eiga í samskiptum við Villimey, heimsækja húsnæði okkar, vefsíður eða annað vefefni á vegum okkar, s.s. samfélagsmiðla okkar. Þá nær stefnan einnig til tengiliða viðskiptamanna, birgja, verktaka og annarra lögaðila sem félagið á í samskiptum við eða er í samningssambandi við, sem og starfsfólks og umsækjenda um störf hjá Villimey. Hér eftir eru framangreindir einstaklingar einnig nefndir ,,þú”.

Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónuupplýsingar. Í 4. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er nánar tilgreint hvað fellur undir hugtakið „vinnsla“. Persónuverndarstefnan fjallar einkum um vinnslu okkar á persónuupplýsingum þegar: 

einstaklingar heimsækja vefsíðu okkar, www.villimey.is, eða samfélagsmiðlasíður okkar,
einstaklingar hafa samband við okkur, hvort sem það er í gegnum bréfpóst, tölvupóst, samfélagsmiðla eða á annan hátt,
einstaklingar ganga inn á svæði í og við húsnæði okkar, sem er vaktað með öryggismyndavélum,
einstaklingar sem sækja um störf eða starfa hjá okkur.

 

Hvaða persónuupplýsingum kunnum við að safna um þig?

Þær tegundir persónuupplýsinga sem við kunnum að safna um þig ræðst af þeirri þjónustu sem við veitum þér. Við leggjum áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar, í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna hverju sinni og í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. 

Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað eftir aðstæðum og fer vinnsla þeirra eftir eðli þess sambands sem þú átt við okkur. Hafðu í huga að ef þú vilt ekki láta okkur í té persónuupplýsingar, sem eru til dæmis nauðsynlegar fyrir framkvæmd samnings eða sem okkur er skylt að vinna samkvæmt lögum, er hugsanlegt að við getum ekki veitt þér umbeðna vöru eða þjónustu.

Villimey vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingar:

Auðkennis- og samskiptaupplýsingar, s.s. nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. Þá kunnum við einnig að vinna ljósmyndir af þér, í þeim tilvikum sem þú ákveður að senda myndir á okkur.
Greiðsluupplýsingar, s.s. kreditkortanúmer eða upplýsingar um bankareikning.
Upplýsingar um vörukaup og/eða þjónustu, s.s. dagsetningu viðskipta, hvað var keypt, val á sendingarmáta og sendingarnúmer til að rekja sendingu.
Samskiptasögu, s.s. upplýsingar úr samskiptum sem þú velur að eiga við félagið, s.s. í gegnum bréfpóst, tölvupóst, skilaboð á samfélagsmiðlum eða önnur samskipti.
Viðkvæmar persónuupplýsingar, þ.e. heilsufarsupplýsingar þínar, einungis þegar þú ákveður að deila þeim með okkur.
Myndefni úr öryggismyndavélum vaktaðs svæðis í og við byggingu okkar.
Upplýsingar um tengsl einstaklinga við lögaðila sem eru í viðskiptasambandi við félagið, s.s. starfstitil, vinnustað og vinnunetfang, og samskipti vegna þessa viðskiptasambands.
Tæknilegar upplýsingar, s.s. IP tölu þeirra sem heimsækja vefsíðu félagsins, ásamt öðrum stafrænum fótsporum í tengslum við notkun og virkni á vefsíðu okkar.

Að auki upptalningar hér að ofan vinnur Villimey eftirfarandi persónuupplýsingar um starfsfólk og umsækjendur um störf:

Upplýsingar í tengslum við starfsumsókn, s.s. reynslu, menntun og meðmæli.
Upplýsingar í tengslum við ráðningarsamning, s.s. ráðningartíma, réttindi og skyldur, starfstitil og starfskjör.
Upplýsingar um staðgreiðslu opinberra gjalda og launatengdar greiðslur, s.s. bankareikning, launaupplýsingar, lífeyrissjóð og lífeyrissjóðsgreiðslur, og upplýsingar um stéttarfélag.
Upplýsingar um viðveru og fjarveru, s.s. vegna veikinda eða orlofs.
Upplýsingar sem safnast á starfstímanum, s.s. samskipti við viðskiptavini eða upplýsingar um vinnuslys.
Viðkvæmar persónuupplýsingar, eftir því sem við á, s.s. upplýsingar um aðild til stéttarfélags eða heilsufarsupplýsingari tengslum við fjarveru frá vinnu vegna veikinda.

 

Vefkökur

Villimey kann að vinna persónuupplýsingar með vefkökum (e. cookies) vegna heimsókna einstaklinga á vefsíðu okkar. Vefkökur eru litlar textaskrár sem komið er fyrir í tölvu eða snjalltæki notanda. Við notum vefkökur meðal annars til að hámarka virkni vefsíðu okkar, greinna árangurinn og veita þér persónulega upplifun. Sumar kökur eru nauðsynlegar tilað vefsíðan gangi og virki rétt og ekki er hægt að slö Meðal upplýsinga sem vefkökur skila okkur eru heimsóknir á vefsvæði, tími, dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef heimsókn kemur, tegund vafra og stýrikerfis. Almennt eru þessar tölfræðiupplýsingar ekki persónugreinanlegar.

Dæmi um vefkökur sem við notum:

Nauðsynlegar vefkökur: gera þér kleift aðferðast um vefsíðuna og nota eiginleika hennar, s.s. að fá aðgang að ruggum svæðum á vefsíðunni. Vefsíðan okkar getur ekki virkað almennilega án þessara köku og er hún því ekki valkvæð.
Hagnýtar vefkökur: gera vefnum kleift að veita aukna virkni og persónulegri upplifun, s.s. muna kjörstillingar þínar eins og t.d. tungumál. Þær geta verið uppsettar af okkur eða þriðja aðila sem við höfum bætt við síðuna okkar. Ef þú leyfir ekki þessar vefkökur er hætt við að einhver eða öll þessi þjónusta hætti að virka rétt.
Tölfræði vefkökur: gera okkur kleift að fylgjast með og bæta árangur vefsíðu okkar. Til dæmis leyfa þær okkur að að greina hvernig vefurinn er notaður, telja heimsóknir, sjá hvaða hluti vefsvæðisins er vinsælastur og hvar má gera betur.
Markaðssetningar vefkökkur: gera okkur kleift að vinna með persónuupplýsingar úr vefkökum í þágu markaðssetningar félagsins og þriðju aðila, s.s. Google og Facebook.

Þú getur ávallt stjórnað þínu vali á vefkökum á okkar vefsíðu. Þú getur einnig lokað á vefkökur með því að breyta stillingum í netvafranum þínum.

 

Í hvaða tilgangi vinnum við persónuupplýsingar um þig?

Öll vinnsla Villimeyjar á persónuupplýsingum fer fram í skýrum tilgangi og byggist á lögmætum grundvelli samkvæmt persónuverndarlögum og öðrum lögum sem eiga við um starfsemi félagsins, s.s. bókhaldslögum nr. 145/1994. 

Við leggjum áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Villimey vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:

reka vefsvæði og bæta notendaupplifun þar.
geta veitt þér þá þjónustu sem þú óskar eftir, hvort sem það er að vinna úr og afgreiða pöntun þína - sem borist hefur á vefsíðu okkar, í tölvupósti eða á annan hátt -, senda þér stöðu pöntunar eða stöðu sendingar eða annað sem tengist þeirri þjónustu.
svara fyrirspurnum, beiðnum og ábendingum sem þú sendir okkur, eftir atvikum með tölvupósti, munnlega eða í gegnum samfélagsmiðla.
senda þér upplýsingar í tölvupósti um tilboð eða afslætti á vörum, og annað tengt fréttabréfi okkar, að því gefnu að þú hafir samþykkt að vera á slíkum tölvupóstlista.
senda þér upplýsingar sem eru sérsniðnar að þér, t.d. um vörur sem eru geymdar í körfunni þinni á vefsíðu okkar.
bæta vörur okkar og þjónustu eða upplýsa þig um breytingar á þjónustu okkar og skilmálum.
uppfylla samning okkar við þig um veitingu ákveðinnar þjónustu eða vöru.
uppfylla skyldur okkar samkvæmt bókhaldslögum og öðrum ákvæðum laga.
uppfylla ráðningar- og eða vinnusamband þitt við félagið.
tryggja öryggis- og eignavörslu í og við húsnæði okkar.
uppfylla lagalegar kröfur.

 

Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga

Villimey ber ábyrgð á því að tryggja að heimild sé fyrir vinnslu persónuupplýsinga. Hér að neðan má sjá útlistun á vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað hjá okkur:

Þegar einstaklingur heimsækir vefsíðu okkar

Þegar einstaklingur notar heimasíðu okkar, www.villimey.is, safnar félagið tæknilegum upplýsingum, s.s. IP-tölu, tegund eða útgáfu vafra sem hann notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður viðkomandi heimsækir innan vefsíðu félagsins. Heimild til þessa er í 1. og 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. Þá kunnum við einnig að vinna upplýsingar um þig í tengslum við aðra virkni á vefsíðu okkar, s.s. vegna tölfræðilegrar greiningar og til að bæta vefsíðu okkar. Frekari upplýsingar þar að lútandi er að finna hér að ofan í umfjöllun okkar um vefkökur.

Þegar einstaklingur kaupir vöru eða þjónustu af okkur

Þegar einstaklingur kaupir vöru eða þjónustu af okkur, vinnur félagið tengiliðaupplýsingar, upplýsingar um pöntun, greiðsluupplýsingar o.þh. á grundvelli samningsbundinnar nauðsynjar. Nauðsynleg samskipti í kjölfar kaupa eru einnig byggð á sömu heimild. Heimild til þessa er í 2. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. 

Þegar einstaklingur sendir okkur beiðni, fyrirspurn eða ábendingu

Einstaklingar geta sent okkur fyrirspurnir af ýmsu tagi, s.s. ósk um aðstoð af ýmsu tagi, fyrirspurn um vörur og virkni þeirra, reynslusögu, ábendingu eða annað bæði í gegnum tölvupóst og samfélagsmiðla. Unnið er með þær tengiliðaupplýsingar sem einstaklingur notar til að hafa samband við okkur auk þeirra upplýsinga sem einstaklingur lætur í ljós. Heimild til þessarar vinnslu er í 1. og 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga, þ.e. samþykki þínu og lögmætum hagsmunum okkar af því að tryggja góða þjónustu eða vinna úr beiðnum þínum. 

Þegar einstaklingur skráir sig á póstlista Villimeyjar

Ef einstaklingur skráir sig á póstlista Villimeyjar vinnum við úr tengiliðaupplýsingum þínum til að eiga samskipti við þig. Við kunnum að nota persónuupplýsingarnar þínar til að senda þér fréttabréf, markaðssetningarefni eða kynningarefni og aðrar upplýsingar sem þú gætir haft áhuga á. Unnið er úr upplýsingunum á grundvelli samþykkis þíns og er heimild til þessa í 1. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. 

Þegar vinnsla byggist á samþykki þínu hefurðu rétt til að draga samþykki þitt til baka hvenær sem er, án þess þó að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkisins fram að afturkölluninni. Einstaklingar geta auðveldlega afskráð sig af póstlistanum okkar með því að smella á samnefndan tengil neðst í tölvupóstunum frá okkur. Þú getur einnig skrifað okkur tölvupóst á [email protected] til að draga samþykki þitt til baka.

Þegar einstaklingur eða vinnuveitandi hans á í viðskiptasambandi við okkur

Villimey á í viðskiptasambandi við ýmsa aðila, s.s. dreifingaraðila, söluaðila, birgja, verktaka og aðra sem selja félaginu sérfræðiþjónustu. Til þess að slíkt viðskiptasamband gangi upp verðum við að vinna ákveðnar persónuupplýsingar, s.s. nafn og netfang. Þegar einstaklingur veitir þjónustu í eigin nafni byggir heimild vinnslunnar á 2. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga, þ.e. að vinnslan sé nauðsynleg til að efna samning. Þegar einstaklingur kemur fram í nafni fyrirtækis byggir vinnslan á lögmætum hagsmunum félagsins af því að geta átt í samskiptum við dreifingaraðila, söluaðila, birgja og aðra sem falla þar undir og byggir sú heimild á 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.

Þegar einstaklingur sækir um starf hjá Villimey eða er starfsmaður

Þegar einstaklingur sækir um starf hjá Villimey eða er starfsmaður byggist vinnsla persónuupplýsinga á nauðsyn til að efna samning eða gera ráðstafanir að beiðni einstaklings áður en samningur er gerður. Heimild til þessa er í 2. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.

Þegar einstaklingur gengur inn á svæði eða í byggingu sem er vöktuð með öryggismyndavélum (rafræn vöktun)

Húsnæði Villimeyjar er vaktað með öryggismyndavélum í öryggis og eignarvörsluskyni. Þeir einstaklingar sem heimsækja húsnæði okkar kunna því að vera teknir upp á mynd. Vinnsla á þeim upplýsingum sem safnast við myndeftirlit byggir á lögmætum hagsmunum félagsins og er heimild til þessa í 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. Hægt er að lesa meira um rafræna vöktun félagsins hér að neðan. 

Heilsufarsupplýsingar einstaklinga

Í afar sérstökum tilvikum vinnur félagið með viðkvæmar persónuupplýsingar um heilsufar þitt. Slík vinnsla fer eingöngu fram á grundvelli ótvíræðs samþykkis þín og að þínu frumkvæði, þ.e. þegar þú ákveður að deila þeim upplýsingum með okkur, hvort sem er í formi reynslusögu, ljósmyndar eða á annan hátt. Heimild til þessa er í 1. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga sem og 1. tl. 1. mgr. 11. gr. persónuverndarlaga. Þegar við vinnum persónuupplýsingar með samþykki þínu getur þú dregið það samþykki til baka hvenær sem er með því að senda póst á [email protected], en það hefur þó ekki áhrif á  lögmæti þeirrar vinnslu sem átti sér stað á grundvelli samþykkisins fram að afturköllun.

Lagaleg nauðsyn

Vinnsla persónuupplýsinga er í sumum tilvikum einnig byggð á lagalegri nauðsyn, t.d. bókhaldslögum nr. 145/1994. Heimild til þessa er í 3. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.

Markaðssetning og önnur tilvik

Í ákveðnum tilvikum er unnið með persónuupplýsingar vegna þess að Villimey hefur lögmæta hagsmuni af því að upplýsingarnar séu unnar, s.s. í þágu markaðssetningar eða við notkun á nauðsynlegum vefkökum. Slík vinnsla fer einungis fram ef hagsmunir okkar og/eða þriðja aðila af því að vinnsla fari fram vega þyngra en einkalífshagsmunir þínir. Sérstakt hagsmunamat þar um er framkvæmt sé þess þörf.

 

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?

Villimey geymir persónuupplýsingar eins lengi og þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar og í samræmi við þau lög sem eiga við um starfsemi félagsins, eða eins lengi og lögmætir hagsmunir félagsins krefjast og málefnaleg ástæða gefur tilefni til. Sem dæmi má nefna að upplýsingar tengdar bókhaldi eru geymdar í 7 ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994, en myndefni sem verður til við rafræna vöktun eyðist eftir 30 daga.

 

Frá hverjum söfnum við persónuupplýsingum um þig?

Villimey vinnur aðallega persónuupplýsingar sem þú hefur veitt okkur, en jafnframt kann að vera að þú látir af hendi persónuupplýsingar með óbeinum hætti þegar þú heimsækir vefsíðu félagsins, þar sem vefkökur eru notaðar.

Í einhverjum tilvikum kunna persónuupplýsingar þínar því að berast til okkar frá þriðju aðilum, s.s. opinberum aðilum, lögaðilum sem eru í viðskiptum við félagið eða samstarfs- og vinnsluaðilum, þegar fyrrnefndir aðilar hafa heimild til afhendingar slíkra upplýsinga.

 

Hvenær miðlum við persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila?

Villimey kann að deila persónuupplýsingum, sem félagið vinnur um þig, með þriðju aðilum til dæmis svo við getum geta veitt þér umbeðna þjónustu eða ef slíkt er skylt samkvæmt lögum. Sem dæmi kann persónuupplýsingum að vera deilt til:

starfsmanna innan félagsins, svo við getum veitt þér umbeðna vöru eða þjónustu.
þjónustuaðila félagsins, s.s. rekstrar- og hýsingaraðila upplýsingakerfa okkar.
banka- og kortafyrirtækja vegna meðferðar á greiðslum.
innheimtuaðila, komi til innheimtu vegna skuldar.

Þessir þriðju aðilar hafa eingöngu aðgang að persónuupplýsingum um þig til að sinna tilteknum verkefnum fyrir okkar hönd og er óheimilt að nota persónuupplýsingarnar í öðrum tilgangi. Þessir aðilar kunna að vera staðsettir utan Íslands en Villimey miðlar þó ekki persónuupplýsingum utan Evrópska Efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála eða samþykkis viðkomandi einstaklings. 

Persónuupplýsingar kunna einnig að vera afhentar þriðja aðila að því marki sem heimilað er eða krafist er á grundelli viðeigandi laga, s.s. til að bregðast við löglegum aðgerðum eins og stefnum eða dómsúrskurði eða samkvæmt réttmætri beiðni lögreglu eða yfirvalda. Við áskiljum okkur rétt til að afhenda lögmönnum okkar persónuupplýsingarnar þínar til að þeir geti staðið vörð um lagaleg réttindi okkar sem fyrirtækis eða réttindi starfsfólks okkar.

Við gætum einnig notið aðstoðar vinnsluaðila við greiningar á vefsíðu okkar eða samfélagsmiðlum og til að birta viðeigandi markaðsefni fyrir þar. Þá gerir Villimey vinnlusamning við viðkomandi aðila, þar sem trúnaður og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með er tryggt.

Villimey vill jafnframt benda þér á að þegar þú ferð inn á eða hefur samband við félagið í gegnum samfélagsmiðlasíður þess, t.d. Facebook- eða Instagram síðu þess, þá gæti verið að veitendur samfélagsmiðlaþjónustunnar fái aðgang að upplýsingum og hvetjum við þig til að kynna þér vel persónuverndaryfirlýsingar þeirra.

 

Rafræn vöktun öryggismyndavéla

Húsnæði Villimeyjar er vaktað með öryggismyndavélum í öryggis- og eignavörsluskyni. Þeir einstaklingar sem heimsækja það eða svæðið í kringum það kunna því að vera tekin upp á mynd. Vinnsla á þeim upplýsingum sem safnast með rafrænni vöktun byggir á lögmætum hagsmunum Villimeyjar, sbr. 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. Sérstakar merkingar eru til staðar sem gera þeim einstaklingum sem eiga leið um húsnæðið viðvart um vöktunina.

Persónuupplýsingar sem verða til við notkun öryggismyndavéla verða einungis notaðar ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Þær má ekki afrita eða afhenda öðrum aðila, nema á grundvelli lagaheimildar, samþykki skráðra aðila eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar hverju sinni. Persónugreinanlegar myndupptökur eru því almennt ekki afhentar öðrum en lögreglu, og þá ef um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða, en einnig í þeim tilgangi að Villimey geti stofnað, haft uppi, eða eftir atvikum varið réttarkröfur.

Myndefni sem verður til við notkun öryggismyndavéla eyðist sjálfkrafa eftir að hámarki 30 daga, nema nauðsyn krefji að varðveita það til að geta stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur, að því gefnu að lög heimili eða dómsúrskurður eða fyrirmæli þar til bærs stjórnvalds liggi fyrir. Þá gilda strangar reglur um aðgang

 

Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrest

Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Villimey mikilvægt og hefur félagið gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að vernda persónuupplýsingar þínar. Dæmi um öryggisráðstafanir sem við notum eru aðgangsstýringar í kerfum félagsins. Starfsfólk fær fræðslu um persónuvernd og er aðgangur að persónuupplýsingum takmarkaður við starfsfólk sem nauðsynlega þarf slíkan aðgang starfs síns vegna. Þrátt fyrir framangreindar ráðstafanir er mikilvægt að hafa í huga að Internetið er aldrei 100% öruggt.

Komi upp öryggisbrestur sem varðar þínar persónuupplýsingar, og sé talið að slíkur brestur hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér og Persónuvernd um það án ótilhlýðilegrar tafar, og eigi síðar en innan 72 klst. eftir að við verðum vör við brestinn. Í þessum skilningi telst öryggisbrestur atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi.

 

Sjálfvirk ákvarðanataka

Sjálfvirk ákvarðanataka og gerð persónusniða fer ekki fram hjá Villimey.

 

Réttindi þín

Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að: 

fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar félagið hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
fá aðgang að og afrit af þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, standi hagsmunir annarra því ekki í vegi, s.s. vegna réttinda annarra sem skulu vega þyngra, sem og óska eftir því að þær séu sendar til þriðja aðila,
fá rangar, villandi eða ónákvæmar persónuupplýsingar þínar leiðréttar, og/eða að þeim sé eytt, eftir því sem lög heimila, t.d. bókhaldslög nr. 145/1994.
koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar.
fá upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, á hvaða rökum hún er byggð og endurskoðun á hennar.
afturkalla samþykki þitt um að Villimey megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar þegar vinnslan byggist á 1. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkis fram að afturkölluninni.

Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega beiðni á [email protected], þar sem við munum staðfesta móttöku á beiðninni og, að jafnaði, bregðast við innan mánaðar frá móttöku beiðninnar. Sé fyrirséð að okkur verði ekki unnt að bregðast við beiðninni innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. 

Þú hefur einnig rétt á að leita til persónuverndarfulltrúa Villimeyjar með því að senda tölvupóst á [email protected] og/eða leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd, teljir þú félagið ekki vinna persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndarlög.

 

Endurskoðun og uppfærslur

Villimey áskilur sér rétt til að endurskoða persónuverndarstefnu sína reglulega og uppfæra eftir þörfum. Stefnan var síðast uppfærð þann 1. apríl 2026.