D4BCD0C3 EFCF 4DF1 85E0 A954386B15F8 1 105 C

Villtar íslenskar jurtir

Jurtirnar okkar vaxa villtar í ósnortinni náttúru Vestfjarða undir hörðum og krefjandi aðstæðum. Við þessar aðstæður þróa jurtirnar með sér öflug lífvirk efni sem skila sér beint í virkni húðvaranna okkar. 

Við handtínum hverja jurt af nákvæmni þegar virkni hennar er hve mest, en það gerir okkur kleift að velja aðeins bestu jurtirnar hverju sinni, forðast álag á vistkerfið og tryggja gæði sem er ekki hægt að ná með vélrænni uppskeru.

Hver jurt er valin fyrir sérstöku eiginleika sína og handunnin með sérþróuðum aðferðum Villimeyjar, sem varðveitir einstaka virkni jurtanna.

Þessi sérstaka jurtavirkni og framleiðsla skilar sér í áhrifaríku galdrasmyrslunum okkar sem græða, styrkja og næra húðina þína.

Jurtalækningar fyrri tíma

Grasalæknar fyrri tíma gengu um þessi sömu hrjúfu landsvæði og við, leiddir áfram af innsæi og djúpri virðingu fyrir takti náttúrunnar.

Þeir söfnuðu því sem landið gaf af virðingu og lærðu hvaða plöntur voru græðandi, nærandi, róandi og verndandi.

Þessi þekking gekk milli kynslóða og barst að lokum til stofnanda okkar, Aðalbjargar. Verk okkar heldur þessari hefð áfram og sameinar jurtalækningar fyrri tíma við nútímarannsóknir og kunnáttu.

E8C69865 6AAF 4F09 9148 2FC01D7E68FE 1 105 C
41618987 D103 451C 90DE D48BD4EB7E20 1 105 C