399FB65C 4852 47C9 99A7 DC8CEF2F9F42 1 105 C

Sagan okkar

Ég ólst upp á Vestfjörðum, þar sem nálægðin við öfluga og ósnortna náttúru vakti áhuga minn á villtum íslenskum jurtum og lækningamætti þeirra.

Árið 1990 fór ég að glíma við heilsuvandamál og fór þá að huga betur að því sem ég borðaði og bar á húðina. Í kjölfarið hóf ég leit að árangursríkum húðvörum án skaðlegra efna, en fann engar. Ég ákvað því að þróa mínar eigin, byggðar á vísidóm, verkkunnáttu og hefðum sem gengið höfðu mann af manni á Íslandi öldum saman.

Í fyrstu voru smyrslin eingöngu fyrir mig og fjölskylduna, en árangurinn lét ekki á sér standa, virknin fréttist út fyrir fjölskylduna og eftirspurnin jókst hratt. Þetta var upphafið að VILLIMEY. 

Árið 2005 kom VILLIMEY með lífrænar húðvörurnar á markað. Í kjölfarið hófst tveggja ára lífrænt vottunarferli og árið 2007 fengum við lífræna vottun. Þá var jafnframt stærsta landsvæði á Íslandi vottað lífrænt til söfnunar villtra jurta. Árið 2015 var virkni jurtaformúla okkar staðfest með lífvirknirannsókn sem framkvæmd var af Matís, óháðum þriðja aðila. Í dag fást húðvörur okkar í flestum apótekum landsins og völdum verslunum, auk þess sem við sendum vörur um allan heim. 

Ég er afar stolt af því sem við höfum skapað en þó stoltust af því að VILLIMEY hefur fengið að styðja og hlúa að einstaklingum sem á þurfa að halda og veitt þeim bætta líðan. Það hefur verið leiðarljósið allt frá upphafi.

Með ást,
Aðalbjörg
Stofnandi og Framkvæmdastjóri Villimeyjar

Fjölskyldufyrirtæki

Villimey er fjölskyldufyrirtæki, rekið af Aðalbjörgu og dætrum hennar.

Frá söfnun villtra jurta á Vestfjörðum til vöruþróunar, framleiðslu og daglegs rekstur; hvert skref er í höndum fjölskyldunnar, unnið af nákvæmni, alúð og djúpri virðingu fyrir nátturunni og lækningamættinum sem hún býr yfir.

 

D75EFC3A C66E 4C3B B1C5 D9A36EA47C7C 1 105 C
CE5E306A 3C43 4A99 A568 15AED215EF28 1 105 C

Lífrænt Vottaðar Húðvörur

Við setjum viðmiðið hærra. Húðvörurnar okkar eru ekki aðeins lífrænar, heldur lífrænt vottaðar í heild sinni og uppfylla því ströngustu alþjóðlegu kröfur um gæði, hreinleika og sjálfbærni.

Í heimi þar sem auðvelt er fyrir fyrirtæki að nota hugtök á borð við „lífrænt“ og "náttúrulegt" án skýrrar staðfestingar, höfum við frá upphafi valið gagnsæi.

Vörurnar okkar eru vottaðar af TÚN, faggildri eftirlits- og vottunarstofu, sem tryggir að húðvörurnar okkar séu í raun og veru lífrænar, hreinar og náttúrulegar.

Fyrir þig þýðir það að þú getur treyst því húðvörurnar okkar eru nákvæmlega það sem þær segist vera; hreinar, náttúrulegar, lífrænar og unnar með virðingu fyrir náttúrunni.

Vísindaleg Studd Virkni

Virkni húðvara Villimeyjar hefur verið staðfest með rannsóknum frá óháðum þriðja aðila; lífvirknirannsóknum framkvæmdum af Matís.

Niðurstöður rannsóknanna sýna lífvirkni formúlanna okkar og styðja við umtalsverð jákvæð áhrif smyrslanna í samræmi við þá reynslu sem mótaði vörurnar frá upphafi.

1A860DE7 EAE3 49D9 A5AF 357F3F4D1A18
81F137FE 9E75 4441 9A1B ED1570B14BB3 1 105 C

Villtar Íslenskar Jurtir

Rætur Villimeyjar liggja í ósnortinni náttúru Vestfjarða og í villtu íslenskum jurtum sem við handtíndum þar, þegar virkni þeirra er hve mest.

Hver jurt er valin fyrir sérstöku eiginleika sína og handunnin með vönduðum aðferðum Villimeyjar, sem varðveita einstaka virkni þeirra og gæði.