Vísindalega studd virkni
Virkni húðvara Villimeyjar hefur verið staðfest með rannsóknum frá óháðum þriðja aðila; lífvirknirannsóknum framkvæmdum af Matís.
Niðurstöður rannsóknanna sýna lífvirkni formúlanna okkar og styðja við umtalsverð jákvæð áhrif smyrslanna í samræmi við þá reynslu sem mótaði vörurnar frá upphafi.
Húðvörurnar eru lífrænt vottaðar af TÚN, faggiltri vottunarstofu á Íslandi. Það þýðir að söfnun villtra jurta, hráefni, framleiðsla og umbúðir uppfylla ströng alþjóðleg skilyrði um uppruna, hreinleika og gæði.
Með vottuninni eru yfir 13.000 skaðleg innihaldsefni útilokuð, svo þú getur treyst því sem þú setur á húðina.
Þetta vottunarferli veitir þér öryggi um að varan sé raunverulega lífræn og standi undir því. Þú þarft því ekki að efast.