Sending & Skil
FERLI PÖNTUNAR
Villimey slf. afgreiðir pöntun eftir að greiðsla hefur borist fyrir þær vörur sem pantaðar eru. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga milli kl. 10 og 15. Pöntun sem lögð er fram eftir þann tíma á virkum degi og/eða á íslenskum frídegi er afgreidd næsta virka dag.
Þegar pöntun hefur verið póstlögð berst þér staðfesting þess efnis.
Póstsending innanlands tekur almennt um 2-7 virka daga og er hægt að velja á milli tveggja flutningsaðila; Íslandspóst eða Dropp.
Við sendum pantanir erlendis með DHL og Íslandspósti, og taka þær almennt um 4-14 virka daga.
Flestar sendingar ná á áfangastað innan eðlilegra tímamarka og án atvika. Vinsamlegast hafðu í huga að VILLIMEY hefur enga stjórn á afhendingardegi eða afhendingartíma eftir að pakkanum hefur verið skilað til flutningsaðila. Afhendingar- ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp og Íslandspósts gilda um afhendingu vörunnar eftir að við höfum veitt flutningsaðila pöntunina.
AFHENDINGARSTAÐIR
Við sendum um allan heim en það geta komið upp tilvik sem gera okkur ókleift að senda pantanir til ákveðinna landa, s.s. ef flutningsaðilar okkar hætta þjónustu þangað.
FLUTNINGSKOSTNAÐUR
Burðargjald greiðist við pöntun vöru og er samkvæmt verðskrá Íslandspósts og Dropp.
Athugið: sé pöntun send erlendis kann að vera að það þurfi að greiða af henni toll. Tollar eru greiddir af viðtakanda.
VILLIMEY tekur enga ábyrgð á töfum sem kunna að verða vegna tolleftirlits og aðra hluti þeim tengdum, svo sem skoðanir sem pöntun gæti farið í gegnum í landinu sem hún er send til.
SKIL OG ENDURGREIÐSLUR
Viðskiptavinur hefur rétt á að skila vöru innan 14 daga frá því að hann veitti vörunni viðtöku og fá hana endurgreidda. Skilyrði fyrir vöruskilum eru að vara sé ónotuð, með órofnu innsigli og í óskemmdum upprunalegum umbúðum og að reikningi eða kvittun fyrir vörukaupum sé framvísað.
Við metum söluhæfi skilavöru og áskiljum okkur rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef framangreindum skilyrðum er áfátt. Þá nær endurgreiðsla vegna vöruskila aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá viðskiptavini, er á ábyrgð viðskiptavinar.
Séu skilyrði vöruskila uppfylt óskum við eftir því að þú sendir okkur beiðni um skil á netfangið [email protected]. Hægt er að skila vöru með því að senda hana til Villimey slf., Leiruvegi 2, 162 Reykjavík Ísland.
Gjafabréf gilda í 4 ár frá útgáfudegi og fást ekki endurgreidd.
RÖNG EÐA GÖLLUÐ VARA
Telji viðskiptavinur sig hafa fengið afhenta ranga eða gallaða vöru ber honum að tilkynna það með því að senda okkur póst á [email protected] ásamt upplýsingum um pöntunarnúmer og reikning/kvittun. Að öðrum kosti getur komið upp sú staða að viðskiptavinur glati rétti sínum til endurgreiðslu.
Viðskiptavinur hefur val um að fá gallaða vöru endurgreidda ásamt sendingarkostnaði eða fá annað eintak af sömu vöru sent til sín, sér að kostnaðarlausu.