35D9BA02 F0C2 4C20 94C6 6098FB51EFC7 1 105 C

Að draga úr plasti: umhverfisvænar álumbúðir

Hjá Villimey er hver ákvörðun sem við tökum mótuð af virðingu fyrir þeim áhrifum sem við skiljum eftir okkur. Umbúðirnar eru þar engin undantekning.

Þrátt fyrir að plast sé enn það efni sem er mest notað í húðvöruiðnaðinu, þá er kostnaður þess mikil; ekki aðeins fyrir umhverfið, heldur líka fyrir heilsu okkar. Plast brotnar ekki niður á náttúrulegan hátt heldur sundrast í örplast sem finnst núna í sjónum, jarðveginum og jafnvel í mannslíkamanum.

Við höfum valið að fara aðra leið.

Allar húðvörur Villimeyjar eru í álumbúðum; efni sem er létt, endingargott og hægt að endurvinna endalaust án þess að það tapi gæðum sínum. Ólíkt plasti, þá brotnar ál ekki niður í skaðlegt örplast og miðað við gler hefur það minna kolefnisspor í flutningi vegna minni þyngdar. 

Umbúðirnar eru hluti af heildinni; valdar með umhyggju fyrir þína heilsu og umhverfisins. Með því að velja ál-umbúðir leitumst við við að draga úr umhverfisáhrifum okkar á sama tíma og við varðveitum hvað best hreinleika og gæði smyrslanna okkar.

98EE6C10 036C 4DDF BDF8 1994D9F2E8EF 1 201 A