Lífræna Bloggið

Af hverju þróuðum við Vöðva- og liða Galdur?

Vöðva- og liða Galdur er fyrsta smyrslið sem við þróuðum. Lestu söguna og kynntu þér lífrænt vottaða smyrslið sem rannsóknir sýna að hafi bólgueyðandi virkni.

IMG 8718

Hvernig varð Vöðva- og liða Galdur til?

Vöðva- og liða Galdur er fyrsta smyrslið sem við þróuðum. 

Aðalbjörg, stofnandi Villimeyjar, glímdi lengi við þráláta vöðvabólgu og verki í öxlum og baki. Hún hafði prófað ýmis smyrsl sem hvorki virkuðu né voru úr efnum sem hún vildi bera á sig, svo hún ákvað að nýta þekkingu sína á lækningajurtum til að þróa sitt eigið smyrsl. Úr varð Vöðva- og liða Galdur, sem reyndist henni afar vel og varð síðar grunnurinn að Galdra-vörulínunni sem Villimey er þekkt fyrir í dag.

Af hverju er gott að eiga Vöðva- og liða Galdur heima?

Eymsli og verkir gera sjaldan boð á undan sér. Verkirnir geta komið eftir ræktina, langan vinnudag, fjallgöngu, garðvinnu eða aðra hreyfingu og álag sem líkaminn er ekki vanur – og til dæmis birst sem stirðleiki á morgnana, aum hné og mjaðmir eða vöðvabólga í öxlum.

Þá er gott að eiga eitthvað til taks sem maður þekkir og treystir. Þess vegna er Vöðva- og liða Galdur ein af þessum vörum sem er gott að eiga alltaf til heima og geta gripið í þegar þörf er á.

Við Villimeyjarnar geymum Galdrana okkar alltaf í ísskápnum og köllum þá okkar „first aid kit“, því það er ótrúlega gott að hafa þá innan seilingar þegar eymsli eða verkir gera vart við sig. Þá finnst okkur líka algjör snilld að geyma Vöðva- og liða Galdurinn við sjónvarpið, annaðhvort til að bera á okkur sjálfar yfir góðum þætti eða fá makann til að nudda aðeins.

Vöðva- og liða Galdur er ekki bara vinsæll á heimilinu, heldur er hann einnig notaður af nuddurum á nuddstofum, þar sem hann nýtist vel samhliða nuddi á auma og þreytta vöðva.

IMG 7421

Bólgueyðandi virkni staðfest með rannsóknum

Vöðva- og liða Galdur er vinsæll hjá fólki sem glímir við vöðvabólgu, liðverki, gigtarverki, sinaskeiðabólgu, beinhimnubólgu, vaxtaverki og ýmis íþróttameiðsl. Margir nota smyrslið einnig við ýmsum bólgum og eymslum í hnjám og mjöðmum.

Lífvirknirannsóknir á Vöðva- og liða Galdri staðfesta bólgueyðandi virkni smyrslisins og að það geti stuðlað að minni bólgumyndun í vöðvum og liðum.

Í smyrslinu vinna saman sérvaldar lækningajurtir sem hafa lengi verið nýttar í jurtalækningum við verkjum og bólgum. Þar má meðal annars nefna víði, sem hefur lengi verið nýtt vegna verkjastillandi eiginleika, ásamt blóðbergi sem er þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika.

Til að fá sem mesta virkni er gott að bera smyrslið vel inn í húðina á viðkomandi svæði, gjarnan í 2–3 þunnum lögum. Margir finna fyrir minnkandi óþægindum og verkjum innan um 30 mínútna frá því að smyrslið er borið á.

Vöðva- og liða Galdur er 100% lífrænt vottað smyrsl án skaðlegra aukaefna eins og rotvarnar-, ilm- og litarefna.

Fyrirvari: Lífræna Bloggið er rými þar sem við deilum því sem mótar Villimey; gildunum okkar, upprunanum og þeirri nálgun sem liggur að baki lífrænt vottuðu húðvörum okkar; hvað lífræn vottun felur raunverulega í sér, villtu íslensku jurtirnar sem við vinnum með og fleira. Hér skyggnumst við einnig inn í íslenska nálgun á vellíðan; lífið í takt við náttúruna, árstíðirnar og venjur. Efnið sem birtist í Lífræna Blogginu er eingöngu ætlað til almennrar fræðslu og innblásturs. Skoðanir, ábendingar og ráð sem þar koma fram endurspegla viðhorf höfundar hverju sinni og eru ekki ætluð sem staðgengill fyrir faglega eða læknisfræðilega ráðgjöf. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin sjálfir og leita til viðeigandi fagaðila eftir atvikum áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnisins. Villimey ber ekki ábyrgð á tjóni eða missi sem kann að hljótast af því að reitt er á upplýsingar sem birtar eru í þessum miðlum.