Lífræna Bloggið

Afhverju ættir þú að velja lífrænt vottaðar húðvörur?

Húðvörur sem standast ströngustu kröfur. Lífræn vottun skiptir sköpum fyrir gæði, öryggi og sjálfbærni.

CE5E306A 3C43 4A99 A568 15AED215EF28 1 105 C

Hvað þýðir lífræn vottun?

Snyrtivöruiðnaðurinn er ekki nægilega regluvæddur. Fyrirtæki geta því markaðssett vörurnar sínar sem “lífrænar”, “hreinar” og “náttúrulegar” án þess að nokkuð sé til í því.

Lífræn vottun felur í sér að óháður vottunaraðilar tekur út og metur allt ferlið við framleiðslu húðvaranna, sem tryggir að hún uppfylli ströng skilyrði um uppruna, hreinleika og framleiðslu. Hver einasti hluti framleiðslu húðvaranna - allt frá söfnun jurta til framleiðslu og umbúða - verður að vera yfirfarinn og samþykktur af vottunaraðilum.

Þetta ferli veitir þér öryggi um að varan sé í raun og veru lífræn og standist ströngustu kröfur um gæði, hreinleika, sjálfbærni og heilleika. Þú þarft því ekki að efast.

05C6E419 66D4 4BDF B937 476557720DD6 1 105 C

Af hverju að velja lífrænt vottaðar húðvörur?

Án skaðlegra efna: Að velja lífrænt vottaðar húðvörur tryggir að þær innihaldi engin eiturefni, skordýraeitur, rotvarnar-, ilm- eða litarefni, sem geta valdið húðertingu eða haft truflandi áhrif á hormónakerfið. 

Virkari efni: Lífrænt vottuð innihaldsefni geta innihaldið allt að 60% meiri andoxunarefni og vítamín, sem næra húðina á áhrifaríkan hátt.*

Sjálfbærni og náttúruvernd: Lífræn vottun þýðir minni sóun fyrir umhverfið og færri skaðleg efni á húðina þína, enda heldur lífræn ræktun mengandi efnum frá vatni og jarðvegi. 

Hentar viðkvæmri húð: Þar sem lífrænt vottaðar húðvörur eru án ertandi aukaefna eru þær almennt mildari og hentugri fyrir viðkvæma húð. 

5C6C91B7 1377 4B1D A6C8 CBE5A2DE4554 1 201 A

Villimey þróar og framleiðir 100% lífrænt vottaðar húðvörur

Við höfum frá upphafi valið gagnsæi. Vörurnar frá Villimey eru lífrænt vottaðar af Vottunarstofunni Tún, sem fylgir ströngustu alþjóðlegu kröfum um lífræna vottun, og tryggir að húðvörurnar okkar séu í raun og veru lífrænar, hreinar og náttúrulegar.

Þú getur treyst því húðvörurnar okkar eru nákvæmlega það sem þær segist vera; hreinar, náttúrulegar, lífrænar og unnar með virðingu fyrir náttúrunni.

*(British journal of nutrition volume 112 issue 514 september 2014, pp 794-811.)

Fyrirvari: Lífræna Bloggið er rými þar sem við deilum því sem mótar Villimey; gildunum okkar, upprunanum og þeirri nálgun sem liggur að baki lífrænt vottuðu húðvörum okkar; hvað lífræn vottun felur raunverulega í sér, villtu íslensku jurtirnar sem við vinnum með og fleira. Hér skyggnumst við einnig inn í íslenska nálgun á vellíðan; lífið í takt við náttúruna, árstíðirnar og venjur. Efnið sem birtist í Lífræna Blogginu er eingöngu ætlað til almennrar fræðslu og innblásturs. Skoðanir, ábendingar og ráð sem þar koma fram endurspegla viðhorf höfundar hverju sinni og eru ekki ætluð sem staðgengill fyrir faglega eða læknisfræðilega ráðgjöf. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin sjálfir og leita til viðeigandi fagaðila eftir atvikum áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnisins. Villimey ber ekki ábyrgð á tjóni eða missi sem kann að hljótast af því að reitt er á upplýsingar sem birtar eru í þessum miðlum.