56B97C66 95D0 4939 9A9B 555ABCE46C02 1 105 C

Finnst þér húðin hafa breyst eftir sumarið?

Eftir sumarfríið getur húðin verið í ójafnvægi, en langir dagar, sól, vindur og ferðalög geta sett daglega húðrútínu úr skorðum. Þegar ágúst gengur í garð er því tilvalið að staldra við, einfalda rútínuna og leggja áherslu á raka, mýkt og reglulega húðumhirðu.

Þú þarft ekki fullan baðherbergisskáp af vörum. Því einfaldari og raunhæfari sem rútínan er, þeim mun líklegra er að hún verði hluti af daglegri rútínu til lengri tíma.

Morgunrútína

  1. Hreinsun. Byrjaðu daginn á að hreinsa húðina. Þú getur notað milda olíu, líkt og Unga Galdur og skolað svo andlitið með volgu vatni og þvottapoka.
  2. Raki og næring. Berðu því næst á þig rakakrem sem veitir húðinni góðan raka og næringu fyrir daginn. Hér getur Æsku Galdur átt vel heima sem hluti af einfaldri daglegri rútínu.
  3. Sólarvörn. Ljúktu morgunrútínunni með sólarvörn til að vernda húðina yfir daginn.

Kvöldrútína

  1. Hreinsun. Hreinsaðu húðina og fjarlægðu óhreinindi, farða og sólarvörn dagsins.
  2. Raki og næring. Berðu á þig nærandi rakakrem og leyfðu húðinni að njóta rakans yfir nóttina. Æsku Galdur getur verið góður hluti af daglegri kvöldrútínu, en þegar húðin kallar á ríkulegri rakagjöf mælum við heilshugar með Bumbu Galdri.

En mundu, húðrútínan virkar yfirleitt best þegar hún er einföld og raunhæf. Veldu einn tíma dags og hafðu vörurnar sýnilegar.

Afhverju við elskum Æsku Galdur í húðrútínuna

Æsku Galdur er 100% lífrænt vottuð andlitsolía, unnin úr kraftmikilli blöndu villtra íslenskra jurta. Olían nærir húðina, veitir henni djúpan raka og hjálpar henni að viðhalda mýkt, teygjanleika og heilbrigðum, náttúrulegum ljóma.

Andlitsolían er rík af fjölómettuðum fitusýrum og hentar sérstaklega vel þegar húðin þarfnast aukinnar næringar, til dæmis í köldu, þurru eða vindasömu veðri. Olían er án rotvarnar-, ilm- og litarefna og hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð.

Æsku Galdur fellur vel inn í einfalda húðrútínu. Við elskum að hreinsa húðina með Unga Galdri og volgum þvottapoka, og bera svo nokkra dropa af Æsku Galdri á hreina húðina og nudda olíunni varlega á andlit, háls og bringu. 

1A860DE7 EAE3 49D9 A5AF 357F3F4D1A18
4754D1b5 Ca76 4E06 B35e F244858bda37

Meira en húðumhirða

Falleg og heilbrigð húð tengist ekki aðeins því sem við berum á hana. Daglegar venjur, næring, svefn og streita geta einnig haft áhrif á það hvernig húðin lítur út og hvernig okkur líður.

1. Drekktu nóg af vatni. 

Nægur vökvi styður við eðlilega starfsemi líkamans og getur hjálpað okkur að halda góðu jafnvægi yfir daginn. Hafðu vatn í brúsa við höndina og drekktu úr honum reglulega!

2. Veldu næringarríkan mat

Fjölbreytt mataræði gefur líkamanum þau næringarefni sem hann þarf. Markmiðið er ekki fullkomnun, heldur reglulegar, nærandi máltíðir sem styðja við vellíðan til lengri tíma.

3. Settu svefninn í forgang

Svefninn er mikilvægur tími fyrir hvíld og endurheimt. Reyndu að halda reglulegum svefntíma, draga úr skjánotkun á kvöldin og skapa rólegt umhverfi sem hjálpar þér að slaka á.

4. Minnkaðu streituna

Langvarandi streita getur haft áhrif á bæði líðan og daglegar venjur. Stutt hugleiðsla, nokkrar djúpar öndunaræfingar eða rólegur göngutúr getur hjálpað þér að hægja á og tengjast líkamanum á ný.

5. Hreyfðu líkamann

Létt hreyfing og teygjur geta losað um spennu, aukið vellíðan og gefið þér kærkomið hlé frá kyrrsetu. Það þarf ekki að vera flókið, nokkrar mínútur á dag geta skipt sköpum!