Einföld og árangursrík húðrútína eftir sumarið
06. ágú. 2026
Sól og ferðalög geta breytt ástandi húðarinnar. Hér eru einföld atriði sem geta hjálpað þér að koma húðinni aftur í jafnvægi eftir sumarið.
Finnst þér húðin hafa breyst eftir sumarið?
Eftir sumarfríið getur húðin verið í ójafnvægi, en langir dagar, sól, vindur og ferðalög geta sett daglega húðrútínu úr skorðum. Þegar ágúst gengur í garð er því tilvalið að staldra við, einfalda rútínuna og leggja áherslu á raka, mýkt og reglulega húðumhirðu.
Þú þarft ekki fullan baðherbergisskáp af vörum. Því einfaldari og raunhæfari sem rútínan er, þeim mun líklegra er að hún verði hluti af daglegri rútínu til lengri tíma.
Morgunrútína
- Hreinsun. Byrjaðu daginn á að hreinsa húðina. Þú getur notað milda olíu, líkt og Unga Galdur og skolað svo andlitið með volgu vatni og þvottapoka.
- Raki og næring. Berðu því næst á þig rakakrem sem veitir húðinni góðan raka og næringu fyrir daginn. Hér getur Æsku Galdur átt vel heima sem hluti af einfaldri daglegri rútínu.
- Sólarvörn. Ljúktu morgunrútínunni með sólarvörn til að vernda húðina yfir daginn.
Kvöldrútína
- Hreinsun. Hreinsaðu húðina og fjarlægðu óhreinindi, farða og sólarvörn dagsins.
- Raki og næring. Berðu á þig nærandi rakakrem og leyfðu húðinni að njóta rakans yfir nóttina. Æsku Galdur getur verið góður hluti af daglegri kvöldrútínu, en þegar húðin kallar á ríkulegri rakagjöf mælum við heilshugar með Bumbu Galdri.
En mundu, húðrútínan virkar yfirleitt best þegar hún er einföld og raunhæf. Veldu einn tíma dags og hafðu vörurnar sýnilegar.
Afhverju við elskum Æsku Galdur í húðrútínuna
Æsku Galdur er 100% lífrænt vottuð andlitsolía, unnin úr kraftmikilli blöndu villtra íslenskra jurta. Olían nærir húðina, veitir henni djúpan raka og hjálpar henni að viðhalda mýkt, teygjanleika og heilbrigðum, náttúrulegum ljóma.
Andlitsolían er rík af fjölómettuðum fitusýrum og hentar sérstaklega vel þegar húðin þarfnast aukinnar næringar, til dæmis í köldu, þurru eða vindasömu veðri. Olían er án rotvarnar-, ilm- og litarefna og hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð.
Æsku Galdur fellur vel inn í einfalda húðrútínu. Við elskum að hreinsa húðina með Unga Galdri og volgum þvottapoka, og bera svo nokkra dropa af Æsku Galdri á hreina húðina og nudda olíunni varlega á andlit, háls og bringu.
Meira en húðumhirða
Falleg og heilbrigð húð tengist ekki aðeins því sem við berum á hana. Daglegar venjur, næring, svefn og streita geta einnig haft áhrif á það hvernig húðin lítur út og hvernig okkur líður.
Fyrirvari: Lífræna Bloggið er rými þar sem við deilum því sem mótar Villimey; gildunum okkar, upprunanum og þeirri nálgun sem liggur að baki lífrænt vottuðu húðvörum okkar; hvað lífræn vottun felur raunverulega í sér, villtu íslensku jurtirnar sem við vinnum með og fleira. Hér skyggnumst við einnig inn í íslenska nálgun á vellíðan; lífið í takt við náttúruna, árstíðirnar og venjur. Efnið sem birtist í Lífræna Blogginu er eingöngu ætlað til almennrar fræðslu og innblásturs. Skoðanir, ábendingar og ráð sem þar koma fram endurspegla viðhorf höfundar hverju sinni og eru ekki ætluð sem staðgengill fyrir faglega eða læknisfræðilega ráðgjöf. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin sjálfir og leita til viðeigandi fagaðila eftir atvikum áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnisins. Villimey ber ekki ábyrgð á tjóni eða missi sem kann að hljótast af því að reitt er á upplýsingar sem birtar eru í þessum miðlum.