Lífræna Bloggið

Náttúruleg lausn við bleyjubruna

Bleyjubruni og útbrot eru algeng hjá börnum. Kynntu þér mildar og náttúrulegar leiðir til að róa viðkvæma húð og draga úr óþægindum.

EA069EF5 0567 4BE1 A01F 0146350B500E 1 105 C

Náttúruleg lausn við bleyjubruna

Bleyjubruni og bleyjuútbrot eru algeng hjá ungum börnum. Sem betur fer er oft hægt að draga úr óþægindum sem því fylgja og lina sársaukann með einföldum og mildum aðferðum.

Ein algengasta orsök bleyjuútbrota er raki og núningur, sérstaklega þegar barnið er lengi í blautri eða óhreinni bleyju. Því skiptir miklu máli að skipta reglulega um bleyju og halda húðinni eins hreinni og þurri og hægt er. Þá getur einnig verið gott að leyfa barninu að vera bleyjulaust í smástund á hverjum degi svo húðin fái að anda.

Við bleyjuskipti mælum við með því að nota volgt vatn og mjúka grisju til að þrífa bleyjusvæðið, í stað blautþurrka sem innihalda ertandi efni. Þá getur einnig verið gott að sleppa sápu á svæðinu í baði og þerra húðina varlega í stað þess að nudda hana.

Eitt mikilvægasta skrefið er að næra og verja húð barnsins með góðu smyrsli.

Bossa Galdur frá Villimey er sérstaklega þróaður fyrir viðkvæma húð og hefur reynst vel á bleyjubruna, útbrot og sár. Rannsóknir sýna að Bossa Galdur er einstaklega græðandi, róar og nærir bleyjusvæðið, vinnur gegn húðskemmdum og að við reglulega notkun hamli hann vexti og eyði bakteríum.

Bossa Galdur er 100% lífrænt vottaður og án allra skaðlegra aukaefna, sem gerir hann að mildum valkosti fyrir viðkvæma barnahúð.

Með reglulegum bleyjuskiptum, góðu hreinlæti, bleyjulausum tíma og reglulegri notkun á Bossa Galdri er oft hægt að hjálpa húð barnsins að ná jafnvægi á ný. 

Fyrirvari: Lífræna Bloggið er rými þar sem við deilum því sem mótar Villimey; gildunum okkar, upprunanum og þeirri nálgun sem liggur að baki lífrænt vottuðu húðvörum okkar; hvað lífræn vottun felur raunverulega í sér, villtu íslensku jurtirnar sem við vinnum með og fleira. Hér skyggnumst við einnig inn í íslenska nálgun á vellíðan; lífið í takt við náttúruna, árstíðirnar og venjur. Efnið sem birtist í Lífræna Blogginu er eingöngu ætlað til almennrar fræðslu og innblásturs. Skoðanir, ábendingar og ráð sem þar koma fram endurspegla viðhorf höfundar hverju sinni og eru ekki ætluð sem staðgengill fyrir faglega eða læknisfræðilega ráðgjöf. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin sjálfir og leita til viðeigandi fagaðila eftir atvikum áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnisins. Villimey ber ekki ábyrgð á tjóni eða missi sem kann að hljótast af því að reitt er á upplýsingar sem birtar eru í þessum miðlum.