Vallhumall - hin forna og fjölhæfa lækningajurt
05. okt. 2026
Heillandi saga vallhumalsins, lækningamáttur jurtarinnar og hvernig forn jurtakunnátta og nútímarannsóknir mætast hjá Villimey.
Jurt Akkillesar
Vallhumall á sér langa sögu sem lækningajurt, en latneska heiti jurtarinnar, Achillea millefolium, á sér ekki síður áhugaverða sögu.
Achillea vísar til Akkillesar úr grískri goðafræði. Samkvæmt gömlum sögnum var vallhumall notaður til að hlúa að sárum hermanna í Trójustríðinu og var jurtin meðal annars talin stöðva blæðingar, græða sár og hafa bakteríudrepandi eiginleika. Sú tenging hefur fylgt vallhumlinum í gegnum aldirnar og á ensku hefur jurtin meðal annars verið kölluð soldier's woundwort, eða „hermannajurt“.
Millefolium þýðir hins vegar „þúsund blöð“ og vísar til einkennandi laufblaða vallhumalsins.
Vallhumal er að finna víðs vegar um heiminn og hefur hann verið nýttur sem lækningajurt á fjölbreyttan hátt í ólíkum menningarheimum um aldir.
Eldri heimildir benda til þess að kínverskir læknar hafi notað vallhumal við bólgum og blæðingum og að Ayurvedic læknar á Indlandi hafi notað jurtina við hitasótt. Hjá ýmsum frumbyggjaþjóðum í Norður-Ameríku var jurtin notuð á brunasár og við blæðingum, kvefi, sárindum í hálsi, gigt, tannpínu og svefnleysi.
Ein fjölhæfasta lækningajurtin
Í gegnum tíðina hafa grasalæknar lýst vallhumli sem styrkjandi, græðandi, blóðhreinsandi og verkjaeyðandi jurt. Smyrsl úr vallhumli hafa verið notuð vegna útvortis kvilla en vallhumalste við innvortis kvillum, svo sem meltingaróþægindum og kvefeinkennum.
Þegar jurtalækningar mæta nútímarannsóknum og kunnáttu
Í dag gefa nútímarannsóknir okkur tækifæri til að skoða þessa hefðbundnu notkun enn nánar. Rannsóknir á vallhumli hafa meðal annars sýnt fram á að hann er róandi, bólgueyðandi, ríkur af andoxunarefnum og inniheldur sýkladrepandi efni.
Þessi samhljómur hefðbundinnar jurtakunnáttu og nútímarannsókna er kjarninn í því hvernig við vinnum hjá Villimey.
Vallhumall er ein af þeim lækningajurtum sem við nýtum í húðvörurnar hjá Villimey, meðal annars í Sára Galdur. Það er ekki að undra að Sára Galdur sé ein af okkar vinsælustu vörum, en þar vinnur vallhumallinn með öðrum sérvöldum lækningajurtum sem mynda kraftmikla blöndu sem rannsóknir sýna að sé einstaklega græðandi, stuðli að uppbyggingu húðarinnar, dragi úr bólgumyndun og vinni gegn hrörnun húðar og húðskemmdum.
Við vonum að þú, kæri lesandi, hafir haft bæði gagn og gaman af því að fræðast um vallhumalinn. Okkur hjá Villimey finnst fátt skemmtilegra en að deila þeirri þekkingu og ástríðu sem við höfum fyrir lækningajurtunum okkar.
Fyrirvari: Lífræna Bloggið er rými þar sem við deilum því sem mótar Villimey; gildunum okkar, upprunanum og þeirri nálgun sem liggur að baki lífrænt vottuðu húðvörum okkar; hvað lífræn vottun felur raunverulega í sér, villtu íslensku jurtirnar sem við vinnum með og fleira. Hér skyggnumst við einnig inn í íslenska nálgun á vellíðan; lífið í takt við náttúruna, árstíðirnar og venjur. Efnið sem birtist í Lífræna Blogginu er eingöngu ætlað til almennrar fræðslu og innblásturs. Skoðanir, ábendingar og ráð sem þar koma fram endurspegla viðhorf höfundar hverju sinni og eru ekki ætluð sem staðgengill fyrir faglega eða læknisfræðilega ráðgjöf. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin sjálfir og leita til viðeigandi fagaðila eftir atvikum áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnisins. Villimey ber ekki ábyrgð á tjóni eða missi sem kann að hljótast af því að reitt er á upplýsingar sem birtar eru í þessum miðlum.