Fóta Galdur
5.890 kr
Fóta Galdur er öflugt, lífrænt vottað smyrsl sem styður við heilbrigði húðarinnar.
Smyrslið hefur reynst vel á:
- sveppasýkingar á fótum og kynfærum;
- sprungnar iljar og sigg;
- vörtur og flökkuvörtur barna;
- skordýrabit, þar með talið lúsmýbit.
Rannsóknir á Fóta Galdri sýna að hann vinnur gegn Candida sveppasýkingum á húð og slímhúð, hindrar útbreiðslu sveppa og hjálpar til við að verja húðina gegn frekara ójafnvægi.
Eiginleikar
- 100% lífrænt vottað smyrsl
- Án rotvarnar-, ilm- og litarefna
- Hentar fyrir viðkvæma húð
- pH-gildi 7,00
Afhverju þú munt elska Fóta Galdur
Fóta Galdur er fjölhæft, græðandi smyrsl sem hefur reynst vel þegar húðin þarf aukna vernd og jafnvægi. Smyrslið er sérstaklega vinsælt fyrir þurra og sprungna hæla og sigg, skordýrabit, sveppasýkingar á fótum og kynfrum sem og vörtur og flökkuvörtur barna.
Fóta Galdur er 100% lífrænt vottað smyrsl og inniheldur þar af leiðandi engin rotvarnar-, ilm- eða litarefni. Hann hentar því vel fyrir viðkvæma húð og fyrir alla þá sem vilja náttúrulega lausn í húðumhirðu.
Vísindalega Studd Virkni
Lífvirknirannsóknir á Fóta Galdri, sem framkvæmdar voru af óháðum þriðja rannsóknaraðila, sýna að smyrslið vinnur á Candida sveppasýkingum á húð og slímhúð; hindrar útbreiðslu sveppa og ver gegn sveppasýkingu; og að græðandi áhrif Fóta Galdurs reyndust umtalsverð umfram ómeðhöndluð viðmið.
pH 7,00
Virk Innihaldsefni
Öll innihaldsefni
Olea europaea fruit oil, Cera alba, Melaleuca alternifolia oil, Stellaria media extract, Alchemilla vulgaris extract, Calendula officinalis extract.
Fóta Galdur - Notkunarleiðbeiningar
Berið Fóta Galdur á hreina og þurra húð 1–3 sinnum á dag eða eftir þörfum. Til að ná sem bestum árangri er mælt með reglulegri notkun yfir ákveðið tímabil, sérstaklega við þrálátum húðvandamálum. Sérstaklega gott er að bera smyrslið á eftir sturtu eða bað, þegar húðin er hrein og móttækileg fyrir raka og næringu.