Lífræna Bloggið

Fæðingartaskan - hvað er gott að hafa með?

Þegar styttist í fæðingu er að mörgu að huga og eitt af því sem er gott að undirbúa er fæðingartaskan, eða spítalataskan eins og hún er líka oft kölluð. Hér deilum við með ykkur lista sem kom okkur að góðum notum við undirbúninginn.

5F90AE22 2992 4EDE A3A5 BD643318CDE6

Fæðingartaskan - hvað er gott að hafa með?

Fæðingartaskan fylgir ykkur á fæðingarstaðinn og geymir það helsta sem þið gætuð þurft í fæðingunni og fyrstu dagana með nýfædda barninu.

Þar sem aðstaða er mismunandi eftir fæðingarstöðum er gott að kynna sér hvað þarf að taka með. Við mælum líka með að hafa töskuna tilbúna með góðum fyrirvara, jafnvel þótt stefnt sé að heimafæðingu, ef aðstæður breytast og þörf verður á að fara á spítala í flýti.

En hvað er gott að hafa í spítalatöskunni? Við tókum saman lista sem við vonum að nýtist ykkur við undirbúninginn.

Fyrir barnið

  • Samfellur – 3 stk. Heilgallar – 2 stk. Sokkar – 2 pör. Við mælum með að velja mjúkan og þægilegan fatnað úr náttúrulegum efnum, til dæmis úr GOTS-lífrænt vottuðum bómul eða merínóull.
  • Heimferðarsett; algengt að hafa prjónaða húfu, peysu, vettlinga, sokka og buxur.
  • Bleyjur.
  • Grisjur eða blautþurrkur.
  • Bossa Galdur fyrir bleyjusvæðið.
  • Taubleyjur
  • Snuð, ef þið hyggist nota það.
  • Mjúkt barnateppi.
  • Ungbarnabílstóll fyrir heimferðina.
  • Þegar við hjá Villimey áttum börnin okkar yfir vetrartímann fannst okkur algjör snilld að vera með Voksi bílstólapokann í kuldanum.
128B9C40 CBEB 4325 9E80 49B5600C87E9 1 105 C

Fyrir móður

Fæðingin og fyrstu dagarnir á eftir eru stórt og krefjandi verkefni fyrir nýbakaða móður. Þess vegna er mikilvægt að pakka því sem veitir henni stuðning og bætta líðan.

Fatnaður:

  • Netanærbuxur og dömubindi sem henta eftir fæðingu.
  • Brjóstagjafahaldarar eða brjóstagjafabolir, ef stefnt er að brjóstagjöf.
  • Lekahlífar fyrir brjóst.
  • Þægileg náttföt eða kósýföt.
  • Aukasett af fötum ef það lekur eða blæðir í gegn.
  • Inniskór og þægilegir sokkar.
  • Mjúk og þægileg heimferðarföt.

Annað:

  • Vatnsflaska
  • Tannbursti og tannkrem.
  • Hárbursti, hárteygjur og hárklemma.
  • Sjampó og hárnæring.
  • Snyrtivörur, s.s. andlitskrem og varasalvi, eyrnapinnar og svitalyktaeyðir.
  • Skolflaska (peri-bottle) til að auðvelda þrif eftir fæðingu.

Geirvörturnar geta verið viðkvæmar í upphafi brjóstagjafar. Sára Galdur er ein af þeim vörum sem getur nýst til að næra og mýkja viðkvæmar geirvörtur.

38D5A71D 254D 4D3F AAF6 149621F976C2 1 105 C

Fyrir makann eða stuðningsaðilann

Makinn, eða stuðningsaðilinn, gegnir mikilvægu hlutverki í fæðingunni og það er gott að huga líka að hans þörfum.

  • Þægileg föt til skiptanna.
  • Inniskó.
  • Snyrtivörur, s.s. svitalyktaeyði, tannbursta, tannkrem o.þ.h.
  • Sími og hleðslutæki, helst með langri snúru.
  • Orkuríkt snarl fyrir báða aðila. Fæðingin getur tekið tíma og mikilvægt að þú og maki hafi það sem þarf til að halda orku.

Neðangreindir hlutir eru ekki nauðsynlegir en geta gert fæðingarupplifunina aðeins notalegr:

  • Myndavél eða sími til að fanga fyrstu augnablikin.
  • Hátalari og góður tónlistalisti.
  • Handspritt
  • Lavender-sprey, piparmyntu-sprey eða mildur herbergisilmur.
  • Baðsloppur og flip-flop sandalar í sameiginlegu sturtuna.
  • Bikiní/sundtoppur í baðkarið ef þú vilt vera í einhverju.
  • Sundföt/skýla fyrir makann.
  • Tyggjó.
  • Gjafapúði.
  • Eyrnatappar og augngríma.
  • Pílatesbolti, ef hann er ekki í boði á fæðingarstaðnum.
  • Hárgreiða til að kreista í lófanum - sumum finnst þrýstingurinn hjálpa þeim að takast á við hríðir.
  • Leigja TENS tæki til verkjastillingar í hríðum. 
  • Nuddsmyrsl.
IMG 7421

Nudd í fæðingunni

Í fæðingu getur snerting verið ómetanleg. Stundum er það hlý hönd á bakið eða þéttur þrýstingur á mjaðmirnar sem hjálpar til í miðjum hríðum. Nudd getur líka verið dýrmæt leið fyrir maka eða stuðningsaðila til að veita hlýju og stuðning á meðan á fæðingunni stendur.

Við mælum heilshugar með því að hafa Vöðva- og liða Galdur meðferðis í fæðinguna. Hann er afar góður í nudd fyrir þreytta móður, til dæmis á mjöðmum, baki og öxlum. Það er þó auðvitað misjafnt hvað hentar hverri konu. Sumar vilja mikla snertingu og nudd á meðan aðrar kjósa að fá að vera í friði. Það er ekkert eitt rétt í þessu og mikilvægast að hlusta á eigin líkama og þarfir.

Að lokum – þín taska, þín fæðing

Það er örugglega eitthvað á þessum lista sem þú munt ekki þurfa og kannski eitthvað allt annað sem þér finnst ómissandi. Spítalataskan þarf ekki að vera fullkomin, hún á einfaldlega að innihalda það sem lætur þér líða vel og getur stutt við ykkur í þessari einstöku upplifun.

Við vonum að listinn nýtist ykkur við undirbúninginn og óskum ykkur alls hins besta á þessu dásamlega ferðalagi.

Fyrirvari: Lífræna Bloggið er rými þar sem við deilum því sem mótar Villimey; gildunum okkar, upprunanum og þeirri nálgun sem liggur að baki lífrænt vottuðu húðvörum okkar; hvað lífræn vottun felur raunverulega í sér, villtu íslensku jurtirnar sem við vinnum með og fleira. Hér skyggnumst við einnig inn í íslenska nálgun á vellíðan; lífið í takt við náttúruna, árstíðirnar og venjur. Efnið sem birtist í Lífræna Blogginu er eingöngu ætlað til almennrar fræðslu og innblásturs. Skoðanir, ábendingar og ráð sem þar koma fram endurspegla viðhorf höfundar hverju sinni og eru ekki ætluð sem staðgengill fyrir faglega eða læknisfræðilega ráðgjöf. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin sjálfir og leita til viðeigandi fagaðila eftir atvikum áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnisins. Villimey ber ekki ábyrgð á tjóni eða missi sem kann að hljótast af því að reitt er á upplýsingar sem birtar eru í þessum miðlum.