1D25F931 C615 4A39 91BF AB8C4B59E3E6 1 105 C

Upphaf Villimeyjar

Ég ólst upp á Vestfjörðum, þar sem nálægðin við öfluga og ósnortna náttúru vakti áhuga minn á villtum íslenskum jurtum og lækningamætti þeirra.

Árið 1990 fór ég að glíma við heilsuvandamál og fór þá að huga betur að því sem ég borðaði og bar á húðina. Í kjölfarið hóf ég leit að árangursríkum húðvörum án skaðlegra efna, en fann engar. Ég ákvað því að þróa mínar eigin, byggðar á vísidóm, verkkunnáttu og hefðum sem gengið höfðu mann af manni á Íslandi öldum saman.

Í fyrstu voru smyrslin eingöngu fyrir mig og fjölskylduna en árangurinn lét ekki á sér standa, virknin fréttist út fyrir fjölskylduna og eftirspurnin jókst hratt. Þetta var upphafið að VILLIMEY. 

Árið 2005 kom VILLIMEY með lífrænar húðvörurnar á markað. Í kjölfarið hófst tveggja ára lífrænt vottunarferli og árið 2007 fengum við lífræna vottun. Þá var jafnframt stærsta landsvæði á Íslandi vottað lífrænt til söfnunar villtra jurta. Árið 2015 var virkni jurtaformúla okkar staðfest með lífvirknirannsókn sem framkvæmd var af Matís, óháðum þriðja aðila. Í dag fást húðvörur okkar í flestum apótekum landsins og völdum verslunum, auk þess sem við sendum vörur um allan heim. 

Ég er afar stolt af því sem við höfum skapað en þó stoltust af því að VILLIMEY hefur fengið að styðja og hlúa að einstaklingum sem á þurfa að halda og veitt þeim bætta líðan. Það hefur verið leiðarljósið allt frá upphafi.

Með ást, 

Aðalbjörg, 

Stofnandi og framkvæmdarstjóri Villimeyjar