Bumbu Galdur
7.490 kr
Bumbu Galdur er lífrænt vottað, nærandi smyrsl þróað til að styðja við húð barnshafandi kvenna og vinna gegn slitum.
Smyrslið er vatnslaust og inniheldur ríkulegt magn af omega- fitusýrum og E-vítamíni, sem hjálpa húðinni að viðhalda raka lengur og veita henni dýpri næringu.
Rannsóknir sýna að Bumbu Galdur stuðlar að uppbyggingu húðfruma og vinnur gegn húðskemmdum. Við mælum því líka með honum eftir meðgöngu til að endurbyggja og næra húðina, og einnig sem alhliða líkamskremi.
Við mælum með því að bera Bumbu Galdur á maga, mjaðmir og brjóst að minnsta kosti öll kvöld, helst beint eftir sturtu eða bað til að kremið fari sem best inn í húðina.
Eiginleikar
- Nærir, mýkir og styður við teygjanleika húðarinnar
- Hentar vel á meðgöngu og eftir fæðingu
- Inniheldur ríkulegt magn af omega-fitusýrum og E-vítamíni
- 100% lífrænt vottað smyrsl
- Án rotvarnar-, ilm- og litarefna
- Vísindalega studd virkni
Afhverju þú munt elska Bumbu Galdur
Bumbu Galdur er þróað til að næra, mýkja og styðja við húðina á tímum mikilla breytinga. Á meðgöngu teygist húðin hratt og getur orðið þurr, viðkvæm, myndað slit og valdið kláða. Þá getur regluleg notkun með Bumbu Galdri hjálpað húðinni að halda raka, mýkt og teygjanleika.
Bumbu Galdur inniheldur einungis lífrænt vottuð innihaldsefni og er því án allra aukaefna, sem er sérstaklega mikilvægt á meðgöngu því það sem við berum á húðina frásogast inn í líkamann.
Smyrslið er einnig frábært sem nærandi andlits- og líkamskrem.
Vísindalega Studd Virkni
Rannsóknir sýna að Bumbu Galdur stuðlar að uppbyggingu húðfruma og vinnur gegn húðskemmdum. Við mælum því líka með honum eftir meðgöngu til að endurbyggja og næra húðina, og einnig sem alhliða líkamskremi.
pH 7,00
Virk Innihaldsefni
Öll innihaldsefni
Olea europaea fruit oil, Cera alba, Tocopherol, Rumex longifolius extract, Stellaria media extract, Achillea millefolium extract.
Bumbu Galdur - Hvernig á að nota hann
Berið á óléttukúluna, mjaðmir og brjóst eins oft og þörf krefur. Við mælum með að nota smyrslið a.m.k. hvert kvöld eftir sturtu eða bað svo smyrslið veiti djúpa næringu og læsi rakann betur í húðinni. Notið eins oft og þörf krefur.