Unga Galdur
5.690 kr
Unga Galdur er sérlega mild og góð ungbarnanuddolía, þróuð fyrir viðkvæma húð barna. Hún hjálpar til við að mýkja, næra og vernda húð barnsins á náttúrulegan hátt.
Unga Galdur inniheldur sérvaldar jurtir, þar á meðal kamillu og arfa, sem í fornu voru notaðar vegna róandi og mýkjandi eiginleika sinna. Rík af fjölómettuðum fitusýrum sem styðja við heilbrigða húð.
Hentar einnig vel í baðvatn eða í heimagerðar blautþurrkur fyrir milda húðumhirðu í daglegu rútínu.
100% lífrænt vottuð olía og þar með án allra aukaefna, sem er sérstaklega mikilvægt fyrir viðkvæma húð barna.
Eiginleikar
- Mild og nærandi ungbarnanuddolía
- Hentar fyrir viðkvæma húð
- 100% lífrænt vottuð ungbarnaolía
- Án rotvarnar-, ilm-, og litarefna
Afhverju þú munt elska Unga Galdur
Að nudda ungabarnið þitt er dýrmæt stund sem getur hjálpað að mynda tengsl við barnið. Ungbarnanudd getur hjálpað barninu að slaka á og stuðlað að betri svefn.
Unga Galdur er 100% lífrænt vottað smyrsl, svo þú getur verið viss um að nuddolían frá Villimey innihaldi ekki nein skaðleg efni. Án allra rotvarnar-, ilm- og litarefna.
Vísindalega Studd Virkni
Lífvirknirannsóknir á Unga Galdri, sem framkvæmdar voru af óháðum þriðja rannsóknaraðila, sýna að olían er rík af andoxunarefnum.
pH 7,00
Virk Innihaldsefni
Öll innihaldsefni
Olea europaea fruit oil, Citrus reticulata peel oil, Lavandula angustifolia oil, Chamomilla recutita extract, Stellaria media extract.
Unga Galdur - Notkunarleiðbeiningar
Berið lítið magn af Unga Galdri í lófana og nuddið varlega á húð barnsins með mjúkum hreyfingum. Hægt er að nota olíuna daglega, til dæmis eftir bað eða þegar þörf er á að næra og mýkja húðina.